Cortés smortés…ég söng bara minn beethoven með tenóra cortesunum sem eru miklu sætari…ágætis dansarar líka. Þannig að ég er ekki svo mikið sár að sjá hann ekki….bara smá svona…..ræræræ…bliiihhhh…
þá er langþráð helgin komin í Gurrýjarkot, ég er ekki alveg frá því að ég sé að spila út af gleði og spenningi. verð að róa mig aðeins. inn, út, inn, út. ekkert að virka. átfittið og lögurinn situr bara og bíður heima….aaahhhh….en fyrst er náttúrulega að syngja 9. aftur í kvell sem er ekki leiðinleg byrjun á kvöldi! Við (og þá meina ég bara við soppurnar sko, hinir komiggi nálægt þessu) fengum svo mikið rífandi lófaklapp og uppistand á tónleikunum í gær að við munum öskra þetta af enn meiri ákvefð í kvell….svei mér þá…
Annars er ekkert meira um þetta að segja. Dagurinn bara góður, fékk til dæmis mjög egó örvandi símtal áðan. ég nottla svara ávallt hér silkimjúkri og tælandi röddu ” fréttastofa útvarps, Gurrý” og þá fæ ég ” ha! gurrý! er það NAFN!!” (byrjar ekki vel æ nó…) og ég nottla svaraði bara “jáháds!” stolt fyrir hönd allra Gurrýjanna. og þá kemur “ha já, já þetta finnst mér nú afskalega fallegt nafn!”og blihblihblih…en jeij! það sem ruv misferst í launum bætir það upp í egópústi fyrir starfsmenn…..reyndar fær fólkið á afnotadeildinni greinilega e-ð lægri laun þvi að það er alltaf verið að bæta þeim það upp með páskaeggjum, út að borða (í kvöld) og miðum á Cortés (ljóta spanjólann sem enginn sér eftir að hafa ekki séð) svo fátt sér nefnt…svo fá þau reyndar líka alltaf skot á föstudögum,en ég held að það sé bara til að fylla þau svo að þau muni ekki hvað vikan hafi verið leiðinleg og fari heim glöð. mæti svo á mán oblivious um hvað liggur framundan.
shiiiiiiiiiiiiiiii….þetta er búið að vera bull. en ég er í ástandi, svona pre-drykkju vímu.
tsuss!
hurru var að gleyma, ég var að bæta við vamos ala plaja myndum hér
Nýleg ummæli