payday á morgun!!

31 03 2004

Loksins eru að koma mánaðamót. Það er eiginlega m ólíkindum hvað ég hef verið blönk undanfarið. Gleymdi nefnilega að gera ráð fyrir að borga inná sumarfríið og eyddi nánast öllum aurum sem eftir voru í það í mánuðinum :) Svo sér maður fram á fullt af útgjöldum núna, klára að borga sumarfríið, klipping, linsur.. kannski ekki svo voðalegt :) Hef ekki borgað fullt verð fyrir klippingu í möööörg ár þar sem ég þekki alltaf einhvern í bransanum sem er tilbúinn til að klippa mig og fá vasapening undir borðið fyrir.. en nú er Maggi klippari farinn í Leiklistarskólann og er ekki að klippa.. waaaa.. svo ég held að ég neyðist bara til að fara að borga eins og annað fólk! :)

Fékk svimandi háan símareikning. Þarf að fara að tsjilla aaaaðeins á smsunum :) heheheh.. reyndar var London ferðin inní þessu og svona.. en samt! Þetta má ekki gerast aftur.

Gærkvöldið var gott. Við gurr og eibs fórum í gymmið, þar var skokkað á hlaupabrettinu.. með sólheimaglott á vörunum af því að horfa á skjáina á meðan heheheh ýkt fyndið að líta yfir salinn, fólk í sínum eigin heimi hálfbrosandi eins og fífl glápandi útí loftið. Svo er maður engu skárri. Svo fórum við í Árbæjarlaugina í pottinn og létum líða úr okkur. Aaaahhh það var svo gott. Og langt síðan ég hef farið í sund að kvöldi til. Þá er bara stappa af ungu fólki í lauginni. Jújú sýna sig og sjá aðra. Við sátum og upphugsuðum verkefni/veðmál sem þarf að uppfyllast fyrir ferðina okkar.. ég fékk mjög kvikindislegt verkefni sem ég efast um að mér takist að uppfylla hehehe.. eða efast um að ég VILJI uppfylla réttara sagt! En verðlaunin eru vegleg, kokkteill og skot frá each and every one! Þegar við vorum orðnar mauksoðnar og þreyttar í brosvöðvunum fórum við og fengum okkur bjór á Kaffi Borg. Þar er stór bjór á 490 kr. Ekki slæmt.





ahhh…london….

30 03 2004

ég er búin að vera að ylja mér við að lesa gamalt london blogg…good times…að mar skuli hafa farið…en fyrst að maður skítur ekki peningum þá er það víst ekki möguleiki…en mar fer bara aftur fljótlega…eða ekki, amk ekki ef súperplanið mitt gengur upp. Ég er að minnsta kosti búin að halda mig viðða í viku, þannig að það hlýtur að vera e-ð sniðugt! gó ég! ok, gefum því mánuð kannski áður en ég fer að fagna….

ég ákvað að dekra við mig í gær eftir kór, átti það SVO skilið eftir að hafa öskrað 9. sinfó beethovens í 2 tíma og e-n vegin vera búin að klúðra öllu yfir daginn. Ég á það til að eiga svona daga þar sem e-n vegin ekkert gengur upp!! ég rek mig í allt, náði að festa mig í úlpunni minni 2x yfir daginn, datt 2x um eigin fætur (verð að muna að fara í göngugreiningu eða e-n anskotann) og svo gat ég ekki opnað útidyrahurðina þegar ég komst loksins heim…hræðilegir dagar alveg hreint, hljómar smávægilegt, en ég er ekki þolinmóðari en svo að ég verð frekar pirruð… eeníveis, ég fór í heitt bað með baðsöltum og las spæjóbók…mjöög afslappandi og gott…að ég skuli ekki gera þetta á hverju kvöldi…





Brrrrrrrr

30 03 2004

Kræst, það er ekkert verið að hafa fyrir því að hita húsið!! RÚV er klakahöll. Ég er að frjósa úr kulda. Var nú verri í gær, þá voru puttarnir á mér ískaldir og ég gat varla pikkað á tölvuna.. Svo undanfarið er ég búin að vera eins og Grýla í útliti, hárið útum allt.. eitthvað glaaaaatað sjampó á heimilinu sem hárið mitt er ekki að meika. Það stendur bara úfið og strítt allt uppí loftið og ég fæ engu ráðið. Smart. Hlakka líka bara svo til að mega fara í klippingu. Það er sýning á fimmtudag og svo ekki fyrr en eftir páska og ég bara ÆTLA að fara í klippingu, þetta bara gengur ekki lengur.

Horfði á Big Blue í gær. Hef ekki séð hana í nokkur ár.. keypti hana á DVD í október en ekki náð að horfa.. ahhhhh þetta er svo æææðisleg mynd.. og var nánast búin að gleyma hversu yfirnáttúrulega fallegur Jean-Marc Barr er *sigh* bara sko HELLOOOOOO hvernig er hægt að vera svona fallegur…. Spyrjið hvaða konu sem er sem hefur séð Big Blue og það er 100% öruggt að henni finnist hann bjútí!! Luc Besson er líka bara snillingur, einn af mínum uppáhaldsleikstjórum.. nokkrar af hans myndum eru í uppáhaldi hjá mér.. Big Blue, Leon og The Fifth Element í sérstöku uppáhaldi.. græt alltaf úr mér augun yfir Leon. Hinir uppáhalds leikstjórarnir eru Tim Burton og Baz Luhrmann. Sem minnir mig á það að ég er ekki enn búin að sjá The Big Fish. Ekki nógu gott mál. Verð að skella mér á hana í hvelli. Hef bara ekki farið í bíó nema einu sinni síðan ég flutti heim, þá sá ég Return of the King. Þetta skrifast á tímaleysi :)

Í dag er þriðjudagur. Þá er mamma í vondu skapi. Best að sneiða vandlega framhjá henni í dag.. og reyna að láta bara fara lítið fyrir sér :)





Letilíf

29 03 2004

já helgin hjá mér var nú askoti róleg bara, eila sem betur fer! ég var aaaalveg til í að horfa á viddeó hele tiden…En ég hitti samt söngskólagellur á föstudaginn, það var mikil þörf á því þar sem við höfum eila ekki slúðrað almennilega bara frá því í sumar…þetta var nottla alveg snilldarkvöld, veigar voru þambaðar og svo ætluðum við að finna dansstað. Stelpurnar vildu endilega far á Thorvaldsen ( whywhy???? ) og ég nottla bara sagði já þar sem ég trúi því bara að allir staðir séu skemmtilegir með skemmtilegu fólki. En við komumst ekki langt því að þegar við vorum að labba framhjá “eðal” staðnum Pravda þá var ég dregin þanngað inn af besta píkulaginu hennar Britney “toxic” og líka af dyravörðum sem fannst víst e-ð of lítið af stelpum þarna uinni og voru að bjóða frítt inn. Eníveis, staðurinn er krapp, en það var nóg af píku poppi til að halda manni í stuðinu. líka nógu mikið af egóboosti þar sem staðurinn virtist vera fullur af útlendingum sem eru aðeins lagnari við að sýna áhuga en íslenskir karlmenn…hvort að það er gott eða slæmt er ég ekki alveg viss um….eila slæmt í þessu tilviki þar sem þetta var Pravda og klukkan var um 3, og þá vilja útlendingar greinilega komast heim að “sofa” en eníveis, mar bara hélt áfram að dansa.

Svo var laugardagurinn bara snilld, allar nautnir lífsins á einum degi, góður matur, nammi, rauðvín, stelpuspóla með þóru, og síðdegisblundur eins lengi og ég vildi…ahh…ok það vanntaði kannski the ultimate nautn, en hún bíður bara betri tíma;) harahrhar





Léttvín og lauklykt

29 03 2004

Helgin yfirstaðin. Óvenju róleg helgi miðað við þær sem á undan eru gengnar. Einhvern veginn virtist þessi helgi hafa gleymst í skipulagningunni og ég átti bara frí alla helgina, engin kóræfing eða neitt. Lúxus.

Við Arnbjörg og Kristín hittumst þó á laugardagskvöldið. Tróðum okkur út af víni og ostum mmmmmmmmm… ýkt gott!! Slúðruðum helling og skemmtum okkur stórvel. Urðum sammála um að það þyrfti að draga saumaklúbbinn oftar út á djammið.. svona þegar hann fer að skila sér til landsins. Ha stelpur, what you say, Guðrún, Birna og Sigga? :) Fórum á Hverfisbarinn og vorum fullar og vitlausar, mjög gaman. Vöfðum karlmönnunum um fingur okkar. Breezerar í bland við hvítvín, mæli ekki með því, var með þvílíka hausverkinn daginn eftir.

Rokkstig helgarinnar fær Arnbjörg. She knows why :) Í öðru sæti er Geiri, sem fær stig fyrir að vera bjargvættur og vinur vina sinna. Þriðja sætið vermir Sæmi, fyrir Breezerana.

Mamma eldaði fyrir ferminguna á sun.. hún gerði indverskan pottrétt, rooosa góðan. En vá, hún þurfti að steikja hálft tonn af lauk og við reyndum eins og við gátum að lofta út og loka öllum hurðum.. en allt kom fyrir ekki. Ég lykta eins og indverskt veitingahús. Sýnist ég þurfa að viðra öll fötin mín. Sem betur fer er þetta þó góður ilmur.. bót í máli!

Í gær fórum við gurr og eibs svo á Rive Gauche, eða Kaffi Borg eins og þetta heitir víst núna.. og spjölluðum um helgina og bara lífið og tilveruna.. Vonandi verður þetta bara vikulegt!





Smúrtsinn, the musical

26 03 2004

Aaaahhh föstudagur. Fiðringurinn liggur í loftinu. Eftirvæntingin eftir helginni leynir sér ekki. Hvaða ævintýri bíða manns handan við hornið? Da da dammmmmmmm… Langar að dansa! Það er svo gaman vei vei vei

Gærkvöldið mjög fróðlegt. Það var semsagt textarennsli á Smúrtsinum. Ég hef aldrei farið á textarennsli áður.. og held enginn af hinum leikurunum heldur. Eníveis, sátum semsagt fimm heima hjá Huld, hámuðum í okkur M&M, lakkrísreimar og saltstangir og drukkum kók með og töluðum í gegnum leikritið :) ekkert smá furðulegt!! Þetta var eins og saumaklúbbur þar sem væri búið að ákveða fyrirfram hvað ætti að segja! :) og oft urðu þetta eins og alvöru fjölskylduumræður.. “hvað áttu við, varst þú í sérherbergi?” “já, ég var í sérherbergi, á móti ykkur, við hliðina á litlu stofunni…” hehehhehehe.. mjöööög fyndið. Svo settum við inn lög og breyttum þessu í söngleik. Skemmtum okkur konunglega. Allir fóru brosandi út og m illt í maganum af áti.

Fór og sótti mömmu til systur hennar í gærkvöldi.. systirin semsagt að fara að ferma á sun.. og allt í hers höndum heima hjá henni þar sem veislan verður haldin. Þegar ég kom voru hvorki meira né minna en FIMM konur að skipuleggja EINA BORÐSKREYTINGU hehehehe.. við kvenfólk erum ótrúlegar stundum.. alveg að leggja einn dúk á borðið og svoleiðis. Var þarna í klukkutíma og þetta var rætt fram og tilbaka ALLAN tímann (og hafði verið í gangi áður en ég kom).. það var komin niðurstaða á endanum hehehe





“Ká-a-eff-eff-i, hættað þamba kaaaaaffi! lalalala”

25 03 2004

sko ef það væri nú e-ntíman hægt að óverdósa af kaffidrykkju þá held ég að ég afreki það hérna á næstu vikum og mánuðum. Það er ekki það að mér finnist kaffi það besta sem til er, sérstaklega rúv kaffið:/ það þarf nú að tyggja þann anskota, en það er bara þessi þörf að standa upp og gera e-ð sem þvingar mig til að drekka kaffi. Það eru nottla takmörk fyrir því hvað maður þarf að standa upp til að pissa oft á dag. Svo reykja allir hérna og taka sér samanlagt klukkutíma pásu á dag í þá iðju, og þá nottla smitast ég í þetta ráp ennþá meira og fer og fæ mér kaffi ennþá oftar. jiiiiiminn hvað ég er að blogga um hrein leiðindi þessa dagana!:) híhí….

EN!!!

ég var bara fyrst núna að heyra um T in the park hátíðina (svoldið sein svona æ nó) og æ just gotta gó!!! ég hef aldrei farið á svona hátíð og bara það að Bowie, muse og the Darkness séu að spila er meira en nóg til að fá mig til að betla fyrir farinu!! Mar ætti kannski að mæta með blokkflautu og sílafón á laugaveginn og athuga hvort að bösking virkar….





Alltígúddí

25 03 2004

Jæja, það sem hvíldi á mér í morgun hefur reddast :) vei vei. Almættið passar uppá mig. En það þýðir ekki að ég ætli að gleyma lexíunni ónei. Ég tek upp mottóið, stolnu frá Christinu Aguilera, TRUST THE VOICE WITHIN! :)

og svo hefur gerst gleðiatburður.. ÉG STÓÐST GREIÐSLUMATIÐ MEÐ STÆL vei vei vei.. fékk mat uppá töluvert meira en ég þurfti svo ég er barasta heví sátt. Nú bara ætti að vera lítíð því til fyrirstöðu að allt gangi upp og ég flytji inn á Sólvallagötu 37. Jibbííííí.

Var að fatta að ég á frí um páskana. Það eru allir búnir að vera að spyrja hvort ég ætli að gera eitthvað um páskana og ég hef einhvern veginn aldrei skilið spurninguna. Nú skil ég! ég á actually frí um páskana!!!!!! ég hef alltaf verið að vinna, frídagar skipta ekki rass máli á fréttastofunni, sama hvort það er miðvikudagur eða jóladagur þá er alveg sama vinnuvaktin. Bara betri matur í mötuneytinu á frídögum. Og þegar maður var í skóla, jájá frí svosum en feik frí því maður átti að lesa eins og vindurinn undir próf. Þannig að ég græddi núna frí vei vei vei.. langar alveg að gera eitthvað. Ísafjörður kannski of kostnaðarsamur.. væri djöfull til í að skella mér í bústað.. svo gæti verið að bara Reykjavíkin verði freistandi, kannski fær maður freistandi tilboð um að gera hluti hér.. who knows.





Lexía lærð the hard way

25 03 2004

Í gærkvöldi ákvað ég að gleyma erfiðum seinniparti úr degi.. hvort sem er ekkert sem ég gat gert til að laga stöðuna. Fór með Gurrý og Arnbjörgu á Prikið, þar var LIVE kvöld og ódýr bjór, eða 250 kall flaskan af Víking. Mjög gott mál. Notaði tækifærðið og viðraði Russian Red MAC glossinn minn.. en hann er æpandi rauður og ég hef ekki haft kjark í að nota hann hingað til.

Dagurinn í dag verður líka erfiður. Nú hvílir skuggi á mér sem er að skemma gleði mína undanfarið. Ég mun læra af mistökum mínum. Alltaf að treysta eigin instincts og ekki vera of grænn og góður og vilja treysta öðrum. Maður á það illilega á hættu að fá það í hausinn aftur. Bara trúa á það sem innri rödd hvíslar að manni. Þá fer allt vel. Héðan af geri ég það.





Nýtt Masterplan!

24 03 2004

já ég er sum sé alltaf með ný framtíðarplön á hverjum degi, en nú er komið eitt voða sniðugt, skemmtilegt og geranlegt sem ég held að ég haldi mig bara við:) húrrahúra húrraaaaaa!!…ætla ekki að útvarpa því svona á netinu fyrr en það hefur amk haldist í viku:) en ég er bara í svo skínandi skap út af þessari stórákvörðun að ég varð að útvarpa þessari fréttleysu….. nú er ég amk ekki eins og pheobe :”I don´t even have a pla…” nú á eg sko “magic beans!!” ok, þetta meikaði nottla engann sens fyrir þá sem ekki kunna friends…en ó vell….I don´t care….